Álestrar og uppgjör
Almennt - fimmtudagur 17.des.09 11:24 - Guðrún Erla Jónsdóttir - Lestrar 453
Starfsmenn Orkuveitu Húsavíkur eru þessa dagana að lesa á rafmagns- og heitavatnsmæla á Húsavík og í nágrenni. Á þeim stöðum sem starfsmenn OH komast ekki inn til að lesa á eru skildir eftir miðar. Það eru vinsamleg tilmæli til fólks að lesa af mælum hjá sér og hripa niður stöðu þeirra á miðann. Miðann má koma með á skrifstofu OH í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, hringja í OH í síma 464-0900 og gefa upp stöðuna eða einfaldlega notast við rafræn skil á innlestri. Á heimasíðu OH er tengill, hægra megin, sem heitir "Álestur". Sé smellt á tengilinn opnast ný síða og þar geta viðskiptavinir OH sett inn heimilisfang, nafn, mælanúmer og stöðu mælanna.
