Fréttir

Global Geothermal tekur ađ sér uppbyggingu Orkustöđvar Orkuveitu Húsavíkur

Samkomulag hefur náðst milli Orkuveitu Húsavíkur ehf. (OH) og breska orkufyrirtækisins Global Geothermal um samvinnu vegna viðgerðar og enduruppbyggingar Orkustöðvar OH á Hrísmóum við Húsavík, án nokkurrar fjárhagslegrar áhættu fyrir OH. Orkustöðin var sú fyrsta í heiminum til að framleiða rafmagn úr jarðvarma með svokallaðri Kalinatækni, sem Global Geothermal hefur einkaleyfi fyrir.

 

Þrálátar bilanir hafa gert rekstur Orkustöðvarinnar erfiðan frá því að stöðin var tekin í notkun árið 2000. Engin orkuframleiðsla hefur verið í stöðinni frá því bilun varð í janúar 2008. Orkufyrirtækinu Global Geothermal er kappsmál að raforkuframleiðsla hefjist að nýju í Orkustöðinni og hefur falið dótturfyrirtæki sínu, Recurrent Engineering, að yfirfara vélbúnað stöðvarinnar, sinna viðgerðum og koma Orkustöðinni í fulla vinnslu á ný.

 

Tæknimenn Recurrent Engineering munu verja allt að 120 dögum í að yfirfara og bilanagreina búnað Orkustöðvarinnar. Sú vinna verður að fullu greidd af Global Geothermal sem mun yfirtaka stöðina meðan viðgerð fer fram að greiningu lokinni. Allur viðgerðarkostnaður mun því falla á Global Geothermal. OH mun leysa stöðina til sín aftur þegar sýnt hefur verið fram á rekstrarhæfni hennar.

 

 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning