Fréttir

Guðmundur A. Jónsson lætur af störfum

Um mánaðarmótin síðustu lét verkstjóri vatns- og hitaveitu, Guðmundur A. Jónsson, af störfum hjá Orkuveitu Húsavíkur eftir 34 ára starf. Á þessum tímamótum komu saman starfsmenn og stjórnarmenn Orkuveitunnar, auk varamanna í stjórn og fyrrverandi framkvæmdastjóra. Guðmundi voru þökkuð vel unnin störf í þágu fyrirtækisins og honum gefin mynd eftir húsvíska listamanninn Sigurð Hallmarsson.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning