Fréttir

Nýr stjórnarmađur í stjórn Orkuveitu Húsavíkur ehf.

Í dag var haldinn hluthafafundur í stjórn Orkuveitu Húsavíkur ehf. Fundurinn var haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík. Jón Helgi Björnsson fór með umboð Norðurþings, eiganda OH, á fundinum. Á fundinum var tilkynnt afsögn Sigurjóns Benediktssonar úr stjórn Orkuveitunnar. Sigurjón hefur setið í stjórn félagsins frá upphafi. Á fundinum var borin upp tillaga um Sigurgeir Höskuldsson sem stjórnarmann. Tillagan var samþykkt á fundinum. Stjórn Orkuveitunnar skipa nú:

Bergur Elías Agústsson, formaður stjórnar

Aðalsteinn Á. Baldursson, stjórnarmaður

Sigurgeir Höskuldsson, stjórnarmaður

Færðar voru til bókar á þessu hluthafafundi þakkir til Sigurjóns Benediktssonar fyrir vel unnin störf í þágu félagsins á síðustu árum. Að auki vilja starfsmenn og stjórn Orkuveitunnar þakka fyrir samstarfið og óska honum velfarnaðar.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning