Tjón á aðveituæð Búðarárgili
Almennt - fimmtudagur 12.ágú.10 08:40 - Guðrún Erla Jónsdóttir - Lestrar 417
Seinnipartinn í gær átti það óhapp sér stað að vörubifreið sem ekið var niður Búðarárgilið rak krana upp undir aðveituæðina í bæinn. Engann sakaði en töluverðar skemmdir urðu á bæði aðveituæð og krana bílsins.
Skemmd á rörinu mun ekki hafa áhrif á afhendingu vatns í bænum fyrr en ráðist verður í viðgerð, en þá þarf að taka vatn af norðurbænum. Það verður auglýst þegar af því verður.
