Stefna OH

Tilgangur Orkuveitu Húsavíkur ohf. er að auka búsetugæði á svæðinu með starfsemi sinni.

Orkuveita Húsavíkur (OH) er opinbert hlutafélag í eigu sveitarfélagsins Norðurþings. Fyrirtækið er veitufyrirtæki og er markmið þess að hámarka afrakstur þeirra auðlinda sem fyrirtækinu er trúað fyrir með skynsamlegri nýtingu, verðmætasköpun og hagkvæmni fyrir eigendur og notendur að leiðarljósi.  

Hlutverk  - tilgangur með starfsemi félagsins

Hlutverk OH er að veita íbúum og fyrirtækjum í Þingeyjarsýslum aðgang að heitu og köldu vatni, auk fráveitu.

Kjarnastarfsemi OH er:

  • Heitt vatn: vinnsla og dreifing
  • Kalt vatn:  vinnsla og dreifing
  • Fráveita

 Önnur starfsemi OH:

Dóttur-/hlutdeildarfélög

  • Rafmagnsframleiðsla
  • Ljósleiðari

 Til að fullnægja kjarnastarfsemi OH:

Auðlindir

  • Nýtingaréttur auðlinda
  • Sérleyfi
  • Tækjakostur, búnaður og lagnir
  • Mannauður
  • Fjármagn

 Þjónusta

  • Afhendingaröryggi
  • Gæði
  • Sanngjarnt verð
  

Framtíðarsýn - hvert stefnir félagið

Framtíðarsýn OH er sú að verða fyrirmyndarfyrirtæki í röðum veitufyrirtækja. Í þessu felst m.a. að OH njóti viðurkenningar fyrir starfsemi sína og standist kröfur um gæði, einnig að öll aðstaða og aðbúnaður starfsmanna sé til fyrirmyndar. Sérstök áhersla skal lögð á:

  • Traust - að vera traust og ábyrgt fyrirtæki
  • Þekking - að vera í fremstu röð hvað varðar starfshætti og tækniþekkingu
  • Náttúruauðlindir - að nýta með skynsamlegum hætti náttúruauðlindir svæðisins í þágu íbúa
  • Afhendingaröryggi - að tryggja viðskiptavinum hámarks afhendingaröryggi og gæði

 Viðskiptastefna

  • OH verði opinbert hlutafélag (ohf.)
  • OH veiti íbúum og fyrirtækjum í Þingeyjarsýslum aðgang að fráveitu, heitu og köldu vatni á sanngjörnu verði fyrir eigendur og notendur
  • OH sé í stakk búin til að veita atvinnustarfsemi sem krefst mikillar vatnsnotkunar aðgang að heitu og köldu vatni á sanngjörnu verði með það að markmiði að efla búsetugæði og atvinnustarfsemi í Þingeyjarsýslum
  • Tryggja að OH hafi aðgang að auðlindum á starfssvæði fyrirtækisins

 Samkeppnisstefna

  • Sérleyfisskyld starfsemi
  • Samvinna við aðrar veitur

 Rekstrarstefna - fjármál

  • kjarnastarfsemi standi undir rekstri, endurbótum og tækninýjungum auk þess að greiða eigendum arð af fjármagni sem bundið er í starfseminni.
  • Skilvirk áætlanagerð og nýting á fjármunum og rekstrarfé
  • Þróunar- og tilraunastarfsemi í dótturfélög til þess að aðskilja frá kjarnastarfsemi (t.d. rafmagnsframleiðsla)
  • Fylgja fjárfestingastefnu fyrirtækisins

 Rekstrarstefna - innra starf

  • Skipurit, boðleiðir og verkferlar séu skýrir
  • Starfslýsingar og ábyrgðarsvið starfsmanna skýrt skilgreint
  • Hvatt til símenntunar, þjálfunar og persónulegrar færni starfsfólks
  • Samstarf við hagsmunaaðila og almannatengsl

 Fjárfestingastefna

  • Fellur undir alla aðra fjárfestingu en daglegan rekstur og viðhald eigna
  • Framfylgni á ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra OH
  • Hámarka ávöxtun þeirra fjármuna sem fjárfestingastefna þess lýtur að
  • Gæta öryggis í vali á fjárfestingakostum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning