AÐALFUNDUR ORKUVEITU HÚSAVÍKUR OHF. ÁRIÐ 2022

Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur ohf. árið 2022 verður haldinn í Stjórnsýsluhúsinu á Húsavík, föstudaginn 22. apríl kl. 15:00
 
Dagskrá skv. 14. grein samþykkta félagsins:
  1. Skýrsla stjórnar. Hluthafar upplýstir um hag  félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári.
  2. Ársreikningur OH. Efnahagsreikningur og rekstrarreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram ásamt athugasemdum endurskoðenda félagsins til samþykktar.
  3. Ákvörðun tekin um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
  4. Kjör stjórnar.
  5. Kjör endurskoðanda.
  6. Ákvörðun tekin um greiðslur til stjórnarmanna fyrir störf þeirra á starfsárinu.
  7. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin