Hugsaðu stórt, hugsaðu grænt!

mynd af facebooksíðu Eims
mynd af facebooksíðu Eims

Hugsaðu stórt, hugsaðu grænt, er yfirskrift vefstofu (netfundar) sem Eimur stendur fyrir, ásamt Nýsköpun í Norðri, SSNE, SSNV og Hacking Hekla. Vefstofan verður haldin næsta fimmtudag þann 15. apríl frá kl. 14:00 til 16:00. Fundurinn er öllum opinn, og verður streymt á Facebook síðu Eims  og sérstakri síðu viðburðarins.

Markmið fundarins er að hvetja fólk til að hugsa um það hvernig við getum nýtt auðlindir Norðurlands með sjálfbærum hætti til framtíðar. Þemað er orka-matur-vatn, heilög þrenning í sjálfbærni. Þessar auðlindir tengjast órjúfanlegum böndum og þannig getur verið gagnlegt að hugsa um þær saman. Þetta eru auðlindir sem við erum rík af, og auðlindir sem við bruðlum með. Hvernig getum við verið sjálfbær og til fyrirmyndar á heimsvísu? Við höfum sannarlega efnin og tækifæri til þess.

Dagskráin er glæsileg, en þar koma saman ráðherra, listafólk, vísindafólk og fólk úr orku- og nýsköpunargeiranum og ræða sín hugðarefni. Sérstaklega verður spennandi að heyra af niðurstöðum nýrrar skýrslu sem gerð var um fýsileikann á stórsókn í ylrækt á Íslandi!