Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur OHF. 2023

Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur ohf. árið 2023 vegna rekstrarársins 2022 verður haldinn miðvikudaginn 26. apríl nk. klukkan: 13:00 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, Ketilsbraut 7-9 á Húsavík.

Dagskrá samkvæmt 14. Grein samþykkta félagsins:

  1. Stjórn félagsins skýrir hluthöfum frá hag félagsins og rekstri þess á liðnu starfsári.
  2. Efnahagsreikningur og rekstrarreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram ásamt athugasemdum endurskoðenda félagsins til samþykktar.
  3. Tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins áreikningsárinu.
  4. Kjör stjórnar.
  5. Kjör endurskoðanda.
  6. Ákvörðun tekin um greiðslur til stjórnarmanna fyrir störf þeirra á starfsárinu.
  7. Breytingar á samþykktum.
  8. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.