Orkuveita Húsavíkur ohf. þakkar góð skil á sjálfsálestrum á síðasta ári. Viðskiptavinir OH hafa verið duglegir að skrá álestur á „mínum síðum“ og hefur skráningum fjölgað þar töluvert á milli ára.
Álestur er nauðsynlegur við árlegt uppgjör og það er hagur notenda að áætlun sé rétt þannig að reikningar taki mið af raunnotkun.
Hægt er að skrá álestur hitaveitumæla á vefsvæðinu www.oh.is og velja þar „MÍNAR SÍÐUR“.
Að innskráningu lokinni skal velja „ NOTKUN OG ÁLESTRAR“ og velja þar að „SKRÁ“ álestur.
Staðfestið að dagsetning álestrar sé rétt, skráið stöðu mælis í rúmmetrum (m3) og að lokum skal „VISTA“ skráninguna.
Þeir sem ekki hafa tök á að senda inn álestur á „mínum síðum“, geta sent álestur eða mynd af mælinum í tölvupósti á netfangið: oh@oh.is eða hringt í síma 464-9850.
Með kveðju,
Starfsfólk Orkuveitu Húsavíkur ohf.