Orkuveita Húsavíkur (OH) hefur samþykkt að selja 13,79% eignarhlut sinn í Sjóböðum ehf. fyrir 70,5 milljónir króna. Ákvörðunin var tekin á stjórnarfundi fyrirtækisins þann 18. maí 2026, eftir að tilboð barst frá Kjálkanesi ehf.
Stjórn OH samþykkti í nóvember 2025 að hefja könnun á mögulegri sölu á hlut félagsins í Sjóböðum. Tilboð Kjálkaness ehf. var tekið til formlegrar afgreiðslu á síðasta stjórnarfundi og var samþykkt með fyrirvara um forkaupsrétt annarra hluthafa.
Stjórn Sjóbaða og aðrir hluthafar félagsins fara nú yfir tilboðið og mun skýrast á næstunni hvort þeir hyggist nýta forkaupsrétt sinn.
OH hefur verið hluthafi í Sjóböðum frá upphafi. Stjórn OH þakkar núverandi og fyrrverandi hlutöfum fyrir farsælt samstarf í gegnum árin.