Til viðskiptavina Orkuveitu Húsavíkur - Álestur

Lesið var af öllum stafrænum hitaveitumælum á þjónustusvæði Orkuveitu Húsavíkur í lok júní og því eru reikningarnir sem berast núna uppgjörsreikningar. Þeir gætu því verið hærri eða lægri en síðustu reikningar.

Við minnum á að hægt er að skoða reikningana á „mínum síðum“ með því að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.

Starfsmenn OH lesa nú af hitaveitumælum 2 sinnum á ári, í júní og í desember og er þetta liður í bætti þjónustu við viðskiptavini þar sem minni hætta verður á mjög háum uppgjörsreikningum.

Með kveðju,
Starfsfólk Orkuveitu Húsavíkur