Orkuveita Húsavíkur mun á næstu dögum hefja framkvæmdir við lagningu nýrrar vatnsveitulagnar frá Grundargarði að Miðgarði.
Framkvæmdin er liður í uppbyggingu og eflingu vatnsveitukerfis bæjarins og mun stuðla að auknu afhendingaröryggi til framtíðar.
Samhliða framkvæmdinni mun RARIK leggja nýjan háspennustreng í sama skurðstæði. Með því er leitast við að lágmarka rask og nýta framkvæmdasvæðið sem best.
Framkvæmdatími
Áætlað er að framkvæmdir hefjist við Grundargarð í byrjun september og að verktími verði um 2,5 til 3 mánuðir.
Áhrif á umferð og aðgengi
Búast má við tímabundnum truflunum á umferð og aðgengi við framkvæmdarsvæðið meðan á verkinu stendur. Leitast verður við að halda raski í lágmarki og tryggja greiða umferð gangandi vegfarenda og ökutækja eftir því sem aðstæður leyfa.
Íbúar og aðrir vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát á framkvæmdasvæðinu.
Orkuveita Húsavíkur biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þakkar íbúum fyrir þolinmæði og skilning meðan á verkinu stendur.