Vegna bilunar í fráveitu verður unnið að uppgreftri við Garðarsbraut 46-48 á móts við Hjarðarhól.
Lokað verður fyrir umferð um svæðið frá kl. 13:00 í dag, 20. október. Gert er ráð fyrir að lokunin vari í 1–2 daga, eftir framvindu viðgerðar.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda.