Vatnslaust á veitusvæði Orkuveitu Húsavíkur í kinn

Vatnslaust á veitusvæði Orkuveitu Húsavíkur í kinn, mánudaginn 12. júlí frá klukkan 11:00-15:00

Orkuveita Húsavíkur auglýsir eftir sumarstarfsmanni.

Orkuveita Húsavíkur auglýsir eftir sumarstarfsmanni. Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og unnið út september.

Hugsaðu stórt, hugsaðu grænt!

Hugsaðu stórt, hugsaðu grænt, er yfirskrift vefstofu (netfundar) sem Eimur stendur fyrir, ásamt Nýsköpun í Norðri, SSNE, SSNV og Hacking Hekla. Vefstofan verður haldin næsta fimmtudag þann 15. apríl frá kl. 14:00 til 16:00. Fundurinn er öllum opinn, og verður streymt á Facebook síðu Eims og sérstakri síðu viðburðarins.

Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur ohf. árið 2021

Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur ohf. árið 2021 verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu á Húsavík, miðvikudaginn 21. apríl kl. 10:00

Ertu búin/n að skila inn álestri á hitaveitumæli?

Orkuveita Húsavíkur óskar viðskiptavinum sínum gleðilegs árs og þakkar fyrir viðskiptin á liðnum árum. Um leið viljum við minna viðskiptavini á að skila inn álestri af hitaveitumælum. Álestur er nauðsynlegur við árlegt uppgjör og það er hagur notenda að áætlun sé rétt þannig að reikningar taki mið af raunnotkun.

Óbreytt gjaldskrá Orkuveitu Húsavíkur

Óbreytt gjaldskrá Orkuveitu Húsavíkur

Stofnæð í sundur á Húsavík

Stofnæð á Ásgarðsvegi fór í sundur og því er lágur þrýstingur á köldu vatni til heimila og fyrirtækja í öllum bænum. Unnið er að viðgerð sem lýkur ekki fyrr en seinnipartinn á morgun, föstudaginn 11. desember.

Nú er kominn tími á álestur!

Orkuveita Húsavíkur ohf. þakkar góð skil á sjálfsálestrum á síðasta ári. Viðskiptavinir OH hafa verið duglegir að skrá álestur á „mínum síðum“ og fjölgaði skráningum þar töluvert á milli ára. Álestur er nauðsynlegur við árlegt uppgjör og það er hagur notenda að áætlun sé rétt þannig að reikningar taki mið af raunnotkun.

Lokað fyrir kalt vatn á Stórhól

Lokað verður fyrir kalt vatn á öllum Stórhól á Húsavík nk. föstudag kl. 10.00. Framkvæmdum á að ljúka fyrir hádegi samdægurs.

Til viðskiptavina Orkuveitu Húsavíkur

Frá og með 1. júlí n.k. mun Orkuveita Húsavíkur hætta að senda út reikninga á pappír, nema um það verði sérstaklega beðið.